G-Hópurinn
02.11.2006 16:00:19 / gulli

Internettengingin

Góðan dag landsmenn nær og fjær. Þar sem tenging við internet verður rofinn hjá öllum meðlimum g-hópsins auk þess sem lyklaborð meðlima eru verulega farinn að láta á sjá, hefur verið ákveðið að loka sjoppunni. Þetta var gaman og við fengum að gera allt sjálfir! Allar færslur hafa verið dæmdar dauðar og ómerkar kv. Palli

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 22:48:49 / gulli

Hleraður

Ég er ekki frá því að síminn minn hafi verið hleraður þegar ég var í norðursjónum. Það var amk slæmt samband og ég heyrði skrýtið klikk í tólinu. Vona að ég fái nafn mitt birt á mbl.is eins og hinir vitleysingarnir sem segjast vera vissir um að síminn sinn hafi verið hleraður. Það er svo mikil athyglissýki í þessari þjóð að það er bara tíbet sem er með meiri athyglissýki miðað við höfðatölu. ´´Eg man nu ekki hver byrjaði á því að halda því fram að sími sinn hafi verið hleraður, en nú keppast menn við að segja ,,MInn líka, minn líka". Hvað er að þessu liði?? og hvað með það þó að síminn hafi verið hleraður, efast um að það séu það mikil hernaðarleyndarmál rædd hér á landi að menn þurfa að vera með votar buxur, það væri ekki nema að það kæmist upp um að þeir væru að tala við viðhaldið.

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 21:27:26 / gulli

Það er saga til næsta bæjar.

Loksins náðist lending með hlaðborðið og allir ætla að dansa Kónga.

Ég fór á Ölver áðan að horfa á fótbolta og veitingamennirnir þar náðu að slá metið sem Trocadero menn áttu í að servera hamborgara. 'Ég pantaði borgara fyrir leik og fékk hann í hálfleik. Svo var borgarinn svo vondur að mér sýndist ég sjá grænan dúk á borðinu. En annars var Ölver fullur að sóðalegum aðdáendum lið frá Liverpool sem spilar ekki í bláum búningum. En ég var að horfa á Chelsea Barcelona og það var ekki sjón að sjá Börsunga, Ronaldinho var eins og fimmta flokks strákur. En ógeðið hann Drogba skoraði. og það alveg ágætismark en hann er samt ógeðslegur gaur. Ég heyrði af því að lýsendurnir á ´Sýn hafi sagt að botninn hafi dottið úr leik Barcelona þegar Eiður Smári fór útaf.

Eigum við að dæma þessa síðu dauða og allar færslunar ómerkar?


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 21:25:37 / gje

drasl

Ohhh ég ætlaði að gera voðalega skemmtilega færslu en þetta drasl vildi ekki setja inn myndina mína þannig að ég nenni því ekki :(


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 20:53:41 / gulli

Týnd amma.

Er einhver búin að týna ömmu sinni. Ef svo er þá er hún á pallinum hjá mér.

G.E.


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 20:53:02 / gulli

SMS

Félagi minn Kom So Soon var að senda mér sms, ég lét það fylgja.

9월 17일에 있을 컨퍼런스 홍보를 도와 주십시오. 아직 행사가 그다지 많이 알려지지 않아서 그런지 참가신청자수가 수용인원(1000명)에 비해 많이 모자랍니다.

홍보를 도와 주실 수 있는 방법은 많습니다.

홈페이지나 블로그를 가지고 계신 분들은 행사 배너를 홈페이지에 붙여 주세요. 파일을 직접 다운로드하셔도 되고 아래 html 코드를 활용하셔도 됩니다. 물론 행사 자체에 대한 글을 블로그 등에 올리시는 것도 대환영입니다.

Magnaður tappi. hahaha


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 20:47:54 / gulli

Þrískiptur súrrelískur veruleiki!

Gummi og Gummi voru að koma heim frá útlöndum, spaða fimma á þá fyrir það. Annars var ég að fá póstkort frá Þorsteini vindgangasmið þar sem hann tjáði mér að hann hafi smíðað stærstu vindgöng Norðan alpafjalla. Ingvar er að prufukeyra þau í þessum skrifuðu orðum. Heyrst hefur í sveitinni að vindgöngin veki mikin óhug meðal bræðranna á Júgurstöðum og gæti allt eins brotist út rímnastríð mikið. Ég bíð gríðarlega spenntur og er að hugsa um að leigja skútu og sigla norðaustur og liggja í vari og athuga hvort ég heyri ekki eina stöku eða svo. Þeir eru velkomnir sem vilja. Nýti kannski tækifærið og gef mönnum að smakka heimabruggið en ég er búinn að vera að þróa mjög áhugaverða blöndu af Pepsi Max og kampavíni og bjór, (svo Nikkan geti drukkið með okkur) Ég hugsa að ég eigi eftir að geta selt meira en minna af þessu. Ég skal ekki gleyma ykkur strákar þegar ég verð orðinn ríkur á að selja KampaMax Birra. Bíð ykkur öllum og fjölskyldum í heimsókn í villinua mína úti surtsey, en ég ætla að kaupa hana með öllum bjórpeningunum. Næsti björgúlfur Íslands!


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 22:23:49 / gulli

DAs ist ein flugzeug

Aber eine kleine bratwurst mit kase habte gewurt an die flugzeug. Ich bin eine kuckelschreiber. Haben Sie antwortet uber die auto von Herr Meier? In munchen war Helmut und Inga Bier getrinken in die Bar. In schule mosst du kein wasser trinken, eine cola und kaffi ist sehr gut. Deutch ist wunderbar!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 12:25:35 / gje

G-festival

Saælir bræður.

Það er komið að því að hið árlega G-festival verður haldið í Færeyjum um næstu helgi. Ég mæli með því að við skippum útilegunni og skellum okkur til Færeyja í staðinn og mætum á G-festival sem haldið er til heiðurs okkur!

Kynnið ykkur dagskránna hér: http://www.gfestival.com/ og við hittumst á Reykjavíkurflugvelli á föstudaginn og fljúgum saman.

G-kveðja,

G


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 18:34:32 / gulli

Kæra dagbók.

Þar sem ég held að það lesi enginn þessa síðu lengur nema ég sjálfur ætla ég aðeins að setja hér inn nokkrar línur um fótbolta.

Það er tvennt sem er að pirra mig í boltanum í dag. í fyrsta lagi er það hvað allir standa með Zidane og það er allt vitlaust út í ,,skúrkinn" Materazzi. Látum liggja á milli hluta hvað Materazzi sagði, Zidane missir sig bara og ætti nú að hafa meiri reynslu á bakinu en það að stanga manninn. Það er alveg pottþétt að sömu aðstæður hefðu verið og Florentin Malouda hefði skallað Materazzi í stað Zidane hefði ekkert mál verið gert í þessu nema það hefði verið talað um hvað Malouda var að hugsa. Hann hefði ekki þurft að koma fram í sjónvarpi og afsaka sig og Materazzi hefði ekki þurft að fara í yfirheyrslu hjá Fifa. Ég semsagt stend með Materazzi og er bara ekkert hrifinn af Zidane, ´(þó að mér þyki hann góður með knöttinn þá finnst mér hann skítakarakter)

Svo er annað sem fer meira í taugarnar á mér. Það eru leikmannakaup Man Utd. Ég kíki á alla helstu fótboltamiðlanna á netinu á svona hálftímafresti og bíð eftir að sjá fyrirsögnina ,,PIRLO TIL MANUTD" eða eitthvað álika. En það sem maður sér er eitthvað bull um Ruud og ég er kominn með feyki nóg af því. Seljið bara manninn, komi tími til. Svo var nú reyndar komið að MAnu væri alveg við það að kaupa Tómas Kústskaft fra WBA, Pólskan markmann. Á meðan er Chelsea búið að kaupa einhverja 38 kalla, Liverpool hálfa S-Amríku og Arsenal Rosicky. Ég er bara Ruudpirraður (hestpirraður) á þessu og bíð áfram spenntur eftir því að það komi stórfréttir um leikmannakaup Manu. Ég bíð jafn spenntur og Svala Björgvins bíður eftir jólunum.


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 21:04:02 / gulli

Ógíraður kassabíll,

Í pistli dagsins ætlum við að kynna Betu. Ólíkt því sem margir ykkar halda er þetta eigi kvennmannsnafn heldur erum við að tala um betu sem notuð er til þess að reikna út ávöxtun á verðbréfasafni.

Það er bæði til ógíruð og gíruð beta og eftir því sem ég man best er munurinn á þeim ó-ið.

En þá er viðskiptafræðipistli dagsins lokið og ég ætla að tala um eitthvað sem ég er kunnari. Semsagt áfengum drykkjum. Mér finnst bjór góður og svo gin, hvort sem það er blandað í appelsínusafa eða grape, en best er það blandað með Tonic.

Ég er sko ekki að vita neitt núna, ég ætlaði að segja frá svaðilförum gærkvöldsins og fattaði svo að það var fimmtudagur og það gerðist ekkert merkilegt nema að Magni komst áfram sem er magnað.

Þangað til að næstu kennslustund

kv.

GE


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 22:03:04 / gulli

Eigum við ekki að gíra okkur upp!

HÆÆÆÆÆ

Nú er mér öllum lokið. Þar sem 7 okkar eru orðnir viðskiptafræðingar og einn hefur ákveðið að vera eilífatöffari (sem hann er) þá tel ég að þessi síða sé réttur staður til þess að ræða verðbólguna. Hvað getum við gert til þess að hindra stivaxandi verðbólgu. HA? sjó veist þú það?

En þessi hópur hefur ekki verið þekktur fyrir það að vera of viðskitpafræðilega sinnaðir. Hvernig væri að fara að hittast og drekka í sig kjark fyrir komandi átök, jafnvel fara að taka árlegu g-hóps útileguna. Hvað segja menn um það.

En sáuði fréttina um konuna í bretlandi sem datt á hausinn og byrjaði bara að tala með jamaiskum hreim. það er magnað, eins og Magni í á móti sól, hann er líka magnaður. Svo er hann með flottasta verðbólguhökutopp í heimi.

Þangað til næst

Kv. Naglinn


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 11:27:28 / gulli

Tár, bros og takkaskór

Það er farið að vera ískyggilega stutt í Leifstöð, þar sem við eigum flug um 8 leytið eru allar líkur á því að fyrsti bjór tælandsferðarinnar verði drukkinn fyrir 7 á mánudagsmorgun, þar er ekki leiðinlegt.

Ég rakst á ansi skemmtilegt myndband sem sýnir harðan FM spilara. Ég er ekki frá því að ég sjái sjálfan mig sitja fyrir framan FM þegar ég horfði á myndbandið. http://www.youtube.com/watch?v=bw1rqMlPY7M&search=football%20manager

En fyrst við erum byrjaðir að tala um að missa sig yfir fótboltaleik, þá var ekki langt í tárin hjá karlmenninu í gær eftir leik Fylkis og Grindavíkur. Ég hugsa að ég hafi bara ekki verið svona sár eftir íþróttaatburðuð síðan Jón Arnar þurfti að hætta keppni vegna meiðsla á ólympíuleikunum í Sidney. Í stuttu máli tapaði Grindavík 2-1 og var það hróplega ósanngjarnt, ég held að jafntefli hefði verið sanngjarnt. Það sem meira er þá var sem dómarinn væri í Fylkistreyju innan undir dómarbúningum, ég reyni að vera hlutlaus og ekki segja svona en þetta er bara staðreynd. Stendur meira að segja í mogganum og eins og alþjóð veit, þá lýgur ekki mogginn.

En það er bara gleði framundan og ég er byrjaður að google hvað maður getur gert sér til dundurs í flugvélum. Það er vinsælt að taka eina snót með sér inná salerni og ummmm "kúka" saman, en það getu maður víst ekki gert þannig að ég mun taka ferða lúdó settið með mér, einhver til í leik?

Kv. Naglinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 12:19:29 / gje

Veðurspá: Update

Hérna er update á veðurspána. Það virðist vera þrumuveður ennþá. Ég hringdi í Sigga Storm og hann sagði að þetta væri eitthvað bull bara, en hann vildi meina að það væri sól og blíða þarna. Við verðum bara að vona að Siggi viti hvað hann syngur.

CURRENT CONDITIONS
90°F
(32°C)
Partly Cloudy
Rel. Humidity: 58%
Wind: CLM at 0 mph (0 km/h)
Sunrise: 5:57 AM
Sunset: 6:37 PM
Barometric Pressure: 29.71"Hg (F)
5 DAY FORECAST
Saturday
95°F (35°C) | 78°F (26°C)
Sunday
93°F (34°C) | 73°F (23°C)
Monday
88°F (31°C) | 75°F (24°C)
Tuesday
90°F (32°C) | 77°F (25°C)
Wednesday
90°F (32°C) | 75°F (24°C)



» 1 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 14:41:14 / gulli

Nú meikar þú, það Gústi!

Jáhá, nú er Gústi sko búinn að meika það. Allir aðilar G-hópsins sem á annað borð áttu að skila inn lokaverkefnum í HR þetta árið hafa gert slíkt. Til þess að fagna því mættu meðlimir og aðrir sem vettlingi gátu valdið til teitis í Glaðheimum á laugardaginn síðasta. Þar var mikil húllumhæ og sjaldan hefur jafn mikil gleði samankomin á 80 fermetrum. Eftir að hafa drukkið og sungið sigursöngva líka og Atli Húnakonungur gerði forðum daga var skundað með sjáfrennireiðum frá Bæjarleiðum sem leið lá í miðju höfuðborgarinnar. Reyndar var mikil mismunur á leigurunum þar sem allt fór í vitleysu hjá símadömunnni, en ég er viss um að hún sér eftir öllu saman. Það komust allir niður í bæ að lokum og sumum var farið að leiðast biðin og lögðu sig í nýjum og mjúkum sófum á Ara.

Já enn einni vaktinni lokið hjá okkur. Menn eru að fara að kíkja í vinnu svona rétt til þess að prófa nýju skrifborðin og stólana áður en haldið verður til Tælands. En Gje er uppi á Esju að kíkja til veðurs og vonandi kemur ný veðurspá innan skamms.

Annars ætla ég að fara að þrífa skítinn eftir gleðinna á laugardaginn.

Kv. Naglinn


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8